Nokia 1200 - Lækningatæki

background image

Lækningatæki
Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með

talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni

lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafið

samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til að

fá upplýsingar um hvort það sé nægilega varið fyrir

útvarpsbylgjum. Slökktu á tækinu þar sem reglur kveða á um

slíkt. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna að nota

búnað sem er næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.